Kraflar frá Miðsitju var felldur í júní síðastliðið sumar. Hann hvílir nú í heiðursgrafreit á Feti á Rangárvöllum ásamt Ásdísi frá Neðra-Ási, sem var ein helsta ræktunarhryssa Fets. Kraflar var heygður með öllum reiðtygjum í sömu viku og ræktandi hans Jóhann Þorsteinsson var jarðaður.