10.02.2008 07:00:31, Bibbi |
Einnig nefndur Mýrar-Jarpur. 1913 seldur til kynbóta Hrossaræktarfélagi Fljótsdalshéraðs og þar nefndur Óðinn. Notaður þar til kynbóta 1914-1918.
Sýningar:
1912 Sveinsstaðir - II verðlaun. Eigandi: Guðmann Árnason, Þernumýri. Stærð: 135 cm
1913 Sveinsstaðir - II verðlaun. Eigandi: Guðmann Árnason, Þernumýri.
Undan Þorgrímsstaða-Jarp kom Jarpur hestur a Þernumýri í Vesturhópi. Þann hest keypti Eggert Jónsson frá Nautabúi ungan, notaði hann til undaneldis og tamdi hann. Hann var kallaður Mýrar-Jarpur. 6 vetra gamall, eða um það bil, var hann seldur til kynbóta austur á Fljótsdalshjerað. Áður en hann færi austur, var hann nokkuð taminn, og reyndist þá viljugur og mjög ljettur hlaupahestur. Þegar austur kom, þótti hann ekki nógu viljugur. Þó var hann nokkuð notaður til undaneldis, en minna en skyldi. Síðastliðið sumar voru 4 dætur hans sýndur á Egilsstöðum á Hjeraði, og hlutu 3 þeirra I. og 1 II., verðlaun. Einnig á Eggert Jónsson, sern áður er nefndur, nokkur hross út af honum, og telur það besta kyn, sem hann hafi eignast. (TA, Búnaðarrit 1924)
|