10.02.2008 05:18:37, Bibbi |
Sr. Lárus Arnórsson í Miklabæ keypti Sörla fyrir Hrossaræktarfélagið ”Sörla”, Akrahreppi árið 1942.
Sýningar:
1938 Garði, Hegranesi - I verðlaun. Eigandi: Pálmi Símonarsson, Svaðastöðum. Stærð: 141 cm
Lýsing: Fríður, harður, reistur, réttur, ágætur bolur, vel settir fætur og réttir.
1941 Frostastaðir - I verðlaun. Eigandi: Friðrik Pálmason, Svaðastöðum. Stærð: 141 cm
Lýsing: Fríður, reistur, bogmekktur, hlutfallagóður, djúpur, frekar þunnur. Reglulegar hreyfingar
Hér er um að ræða einhverja þá mögnuðustu skyldleikarækt, sem unnt er að framkvæma, og þó var gengið einu spori lengra síðar á Svaðastöðum, er Tinna 147 fékk við þessum syni sínum. Þeirra dóttir var Stjarna frá Axlarhaga, móðir Gamms 406 frá Axlarhaga. Stjarna var vel sköpuð og fögur hryssa, og þessi margslungna skyldleikarækt sýnir, hversu Svaðastaðastofninn er laus við úrkynjandi erfðaveilur. Sörli var notaður á Svaðastöðum og í Viðvíkursveit árin 1935-1941, en þá var hann seldur séra Lárusi Arnórssyni á Miklabæ, sem notaði hann til ársins 1955 að undanskyldu árinu 1952, því þá fékk Sigurður frá Brún hestinn leigðan til Borgarfjarðar, þar sem margar hryssur voru leiddar undir hann. (GB, Æ&S I)
Brúnn er mjög myndarlegur og að sama skapi fríður og því líkur að hann væri gæðingsefni, en hann er enn ótaminn, svo alla reynslu vantar á því. Léttir, föður hans, fékk Hrossaræktarfélag Viðvíkurhrepps og reyndist hann prýðilega, en því ver naut hans skemur við en skyldi, því hann fékk heymæði á miðjum aldri, svo að varð að fella hann 12 vetra gamlan. Fer svo oft þegar hestar eiga ekkert heimili, en verða að hrekjast milli manna. Undan Létti komu mörg góð hross og nokkrir gæðingar. (TA, Búnaðarrit 1939)
|